Golf

Stadler fær að spila á Masters með föður sínum

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vísir/Getty
Kevin Stadler og Stephan Gallacher fögnuðu sigri á tveimur stærstu mótunum í golfheiminum um helgina.

Stadler vann sitt fyrsta PGA-mót um helgina en það fór fram í Phoenix. Hann spilaði á 68 höggum á lokahringinum og endaði einu höggi á undan þeim Bubba Watson og Graham DeLaet.

Watson, sem hafði verið í toppbaráttu allt mótið, spilaði á 71 höggi í gær. Hann tapaði höggi á sextándu og þurfti að setja niður tæplega tveggja metra pútt á átjándu til að tryggja sér bráðabana. Watson brást bogalistin og Stadler fagnaði sigri.

Með sigrinum náði Stadler að tryggja sér þátttökurétt á Masters-mótinu í ár en faðir hans, Craig, vann það mót árið 1982. Craig tekur enn þátt í PGA-mótaröðinni en þetta verður í fyrsta sinn í sögunni sem feðgar spila saman á Masters.

„Það verður frábær upplifun því þetta verður sannarlega mitt síðasta mót. Ég hef ítrekað sagt að ég muni hætta þegar hann kemst inn," sagði Craig.

Skotinn Gallacher fagnaði sigri á Dubai Desert Classic-mótinu en það var hluti af Evrópumótaröðinni. Gallacher átti titil að verja á mótinu og er fyrsta kylfingnum sem tekst að vinna mótið tvö ár í röð.

Hann spilaði á samtals sextán höggum undir pari en Emiliano Grillo frá Argentínu varð í öðru sæti á fimmtán undir pari.

Rory McIlroy, sem byrjaði frábærlega í mótinu, spilaði á 74 höggum síðasta daginn og endaði í níunda sæti. Tiger Woods varð í 41. sæti eftir að hann spilaði á 71 höggi í gær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×