Tónlist

Tenille vill skilja við Kafteininn

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
Ástin hélt þeim saman í 39 ár.
Ástin hélt þeim saman í 39 ár.
Hjónaband Toni Tenille og Daryl Dragon, parsins sem skipaði dúettinn vinsæla Captain & Tenille frá árinu 1974 til dagsins í dag, er senn á enda þar sem Tenille hefur sótt um skilnað.

Þekktasta lag dúettsins er hið sígilda Love Will Keep Us Together, sem náði miklum vinsældum árið 1975. Einnig var lagið Do That to Me One More Time vinsælt árið 1979.

Parið gifti sig fyrir 39 árum og segist Dragon ekki hafa hugmynd um hvers vegna konan hans vill skilja við hann.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×