Golf

Korda sigraði á Bahamaeyjum

Jón Júlíus Karlsson skrifar
Jessica Korda fagnar sigri á Bahamas.
Jessica Korda fagnar sigri á Bahamas. Vísir/AP
Jessica Korda frá Bandaríkjunum sigraði á Bahamas LPGA Classic mótinu sem er fyrsta mót ársins á LPGA-mótaröðinni. Mótinu lauk á sunnudag og fékk Korda fugl á lokaholunni í mótinu til að tryggja sér sigurinn.

Korda lék samtals á nítján höggum undir pari og varð einu höggi betri en landa sín Stacy Lewis. Þetta er annar sigur Korda á mótaröðinni en hún er tvítug að aldri.

LPGA-mótaröðinni er sterkasta mótaröð kvenna í heimi. Golfstöðin hefur tryggt sér sýningarétt frá mótaröðinni í ár og verða stærstu mót ársins í beinni útsendingu.

Lokaúrslit í mótinu




Fleiri fréttir

Sjá meira


×