Tindabikkjan afhent Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar 29. janúar 2014 15:30
Glæpafélag Vestfjarða verður með glæpsamlega samkomu núna á laugardag 1. febrúar klukkan þrettánhundruð. Glæpastundin mun fara fram á viðeigandi stað eða á Bókasafni Ísafjarðar þar sem allar glæpabækur þjóðarinnar eiga einmitt samanstað. Hápunktur glæpastundarinnar er að stjálfsögðu hin árlegu verðlaun Glæpafélags Vestfjarða Tindabikkjan verða afhent fyrir bestu glæpasögu síðasta árs. Það er óhætt að segja að síðasta glæpaár hafi verið glæpsamlega gott. Svo gott að miklar og átakanlegar umræður, sem enduðu þó ekki á glæp þó tæft hafi staðið, um hver væri besta íslenska glæpasaga ársins voru í raun alveg glæpsamlega langar. En nú loksins hafa tekist sættir meðal félaga í Glæpafélagi Vestfjarða og komið er að því að tilkynna hver er besta íslenska glæpasagan árið 2013. Auk þess að afhenda Tindabikkjuna núna á laugardag á Bókasafni Ísafjarðar verður lesið úr verðlaunasögunni og sitthvað fleira glæpsamlegt verður á efnisskrá félagsins. Allir eru velkomnir og boðið verður uppá glæpsamlega góðar veitingar.Þetta er fjórða árið í röð sem Glæpafélag Vestfjarða afhendir Tindabikkjuna fyrir bestu íslensku glæpasöguna á almanaksárinu. Yrsa Sigurðardóttir fékk verðlaunin fyrstu tvö árin og árið 2012 fékk Stefán Máni verðlaunin fyrir bók sína Húsið.
Menning Mest lesið Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Lífið Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Lífið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið Hvað veistu um… London? Lífið Jörðin undir fótum okkar framlag Íslands til Óskarsverðlauna Bíó og sjónvarp Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Lífið Gloria Steinem er látin Lífið „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Menning Úr verkfræðinni í listina: „Stundum verður maður bara að fylgja innsæinu“ Lífið samstarf Fleiri fréttir „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira