Tónlist

Nýtt lag frá Sálinni

Gunnar Leó Pálsson skrifar
Sálin hans Jóns míns eftir tónleika í Hörpu.
Sálin hans Jóns míns eftir tónleika í Hörpu. mynd/Guðmundur Lúðvíksson
Hin íslenska og sumpart þjóðlega hljómsveit, Sálin hans Jóns míns hefur sent frá sér nýtt lag í útvarpsspilun. Það ber heitið Ferðamenn og er að finna á nýjustu hljómskífu sveitarinnar, Glamr, en lagið var frumflutt á viðhafnartónleikum sveitarinnar í Hörpu þann 9. nóvember síðastliðinn.

Tónverkið er af rólegra taginu og textinn nokkurs konar hugleiðing um lífið og framvindu þess í víðu samhengi, með áherslu á tilfinningar, ást og sameiginleg örlög okkar allra. Gaman er að geta þess, að fyrrum Sálarmaður og núverandi kvikmyndatónskáld í Vesturheimi, Atli Örvarsson, útsetti strengjaparta lagsins.

Glamr er þriðja platan í plöturöð, þar sem munaðarlaus lög Sálarinnar eru sett plötu ásamt nýju efni.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×