Ford framleiðir árgerð 1932 Finnur Thorlacius skrifar 15. janúar 2014 14:45 Ford 5-Window Coupe er enn mjög vinsæll.
Svo vinsælt er enn í Bandaríkjunum að smíða svokallaða „Hot Rod“-bíla að Ford sér sig knúið til að framleiða vinsælustu gerðina til slíkrar smíði. Það er 1932 árgerðin af Ford 5-Window Coupe. Þessi tiltekni bíll er afar vinsæll til smíði „Hot Rod“-bíls og í raun holdgervingur slíkra bíla. Vandinn er sá að alltof fá eintök voru smíðuð í upphafi af þessum bíl og fá þeirra hafa varðveist svo vel að hægt sé að gera þau upp með góðu móti. Því hefur Ford gripið til þess ráðs að smíða bílinn aftur 82 árum seinna og bjóða kaupendum íhluti í bílinn eftir þörfum. Kaupendur hafa hingað til átt kost á því að kaupa einstaka boddýparta smíðaða af litlum framleiðendum úr trefjaplasti, en þeir hafa oft reynst hin versta hrákasmíð. Því munu margir kætast við þessa framleiðslu Ford að bjóða „original“ bílaparta smíðaða úr besta stáli sem nútíma tækni leyfir. Ford býður kaupendum einnig uppá vélar í þessa bíla. Ford smíðar reyndar og liggur með á lager fleiri gerðir eldri bíla sinna, þ.e. Ford Mustang 1965-70 og 1940 árgerðina af Ford Coupe.
Mest lesið Afsalar sér verðlaunum fyrir Sykurbað Innlent Hafi þegið pening fyrir að giftast kærustu Quang Le Innlent „Þetta er náttúrlega djöfulsins bruðl“ Innlent Uppgjör í undirheimunum undir Höfðatorgi Innlent Hvöss suðvestanátt og él fram á laugardagsmorgun Innlent Þingheimur hló að þýðingu Daða Más Innlent Banksy opinberaður, enn einu sinni Erlent „Ég sit ekki hér og hóta því að við séum á leiðinni í verkfall“ Innlent Mun kæra áburð um barnaperraskap til lögreglu Innlent „Mjög vont veður sem mun eflaust skapa vandamál“ Innlent