Flytja tvö ný jólalög 13. desember 2013 13:00 Jólatónleikar Söngfjelagsins verða haldnir í Grafarvogskirkju á morgun og á sunnudaginn.
Jólatónleikar Söngfjelagsins verða haldnir í Grafarvogskirkju á morgun og á sunnudaginn. Á efnisskránni verða þekkt og sígild jólalög í bland við nýrri tónlist frá ýmsum löndum. Gestir Söngfjelagsins eru að þessu sinni kórinn Vox Populi og kvartettinn Mr. Norrington, Björg Þórhallsdóttir sópran, Kristjana Arngrímsdóttir alt og Ragnheiður Gröndal, ásamt kammersveit skipaðri einvala hljóðfæraleikurum. Stjórnandi er Hilmar Örn Agnarsson. Frumflutt verður nýtt jólalag eftir Hreiðar Inga Þorsteinsson tónskáld, sem samið var fyrir Söngfjelagið af þessu tilefni, og Ragnheiður Gröndal frumflytur einnig nýtt jólalag. Þetta er í þriðja sinn sem Söngfjelagið heldur tónleika á aðventunni. Er það í anda hefðar sem Hilmar Örn skapaði í Skálholti en hann stóð árum saman fyrir aðventutónleikum sem nutu mikilla vinsælda þar um slóðir og urðu ómissandi þáttur í tónlistarlífinu á aðventu. Söngfjelagið heldur nú þessu starfi áfram á höfuðborgarsvæðinu.Tónleikarnir laugardaginn 14. desember hefjast klukkan 17 en á sunnudaginn 15. desember hefjst þeir klukkan 18.
Menning Mest lesið Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Lífið Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Lífið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið Hvað veistu um… London? Lífið Jörðin undir fótum okkar framlag Íslands til Óskarsverðlauna Bíó og sjónvarp Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Lífið Gloria Steinem er látin Lífið „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Menning Úr verkfræðinni í listina: „Stundum verður maður bara að fylgja innsæinu“ Lífið samstarf Fleiri fréttir „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira