Mín dýpstu vefleyndó Atli Fannar Bjarkason skrifar 5. desember 2013 06:00 Vodafone-lekinn er toppurinn á ísjakanum. Við dælum persónuupplýsingum inn á samfélagsmiðla daglega og það er tímaspursmál hvenær samskipti okkar af Facebook, Snapchat og fleiri samfélagsmiðlum verða gerð opinber. Ekki ætla ég að bíða eins og bjáni eftir félagslegri aftöku. Nei, ég hyggst misnota þetta pláss í víðlesnasta dagblaði landsins og baktryggja mig með því að opinbera mín dýpstu vefleyndó. Spjallið á Facebook nota ég daglega. Þar spjalla ég við vini og vinnufélaga og dreg ekkert undan. Alþingismenn, sjónvarpsstjörnur, vinir mínir og keppendur í undankeppni Eurovision hafa orðið fyrir barðinu á galgopalegu blaðrinu í mér og við þau vil ég segja að ég meinti örugglega hvert einasta orð. Sorrí. Snapchat er alvarlegra mál. Einhvern tíma verða myndirnar, sem fólk heldur að gufi upp eftir að viðtakandinn skoðar þær, opinberaðar af kófsveittum Mountain Dew-lepjandi hakkara. Ég svitna við tilhugsunina um að í bunkanum leynist myndir af mér. Myndirnar valda eflaust usla í ákveðnum kreðsum samfélagsins og vil ég til dæmis biðja móður mína afsökunar á hegðun minni — myndin sem sýnir mig ganga örna minna var ætluð vinum. Hún var reyndar tekin í sjálfsvörn þar sem sömu vinir nýttu hugbúnaðinn til að koma hægðum sínum á framfæri, í háskerpu og stundum steríó. Þá er mikilvægt að fólk viti að nektarmyndin af mér í spegli baðherbergis míns var aðeins ætluð kærustunni minni. Við vorum reyndar ekki kærustupar þegar ég sendi myndina, sem útskýrir viðleitnina til að spenna sem flesta vöðva líkamans og notkun lýsingar til að skerpa á þeim. Ég skammast mín samt ekki enda vakti myndin mikla lukku — og þá sérstaklega fagmannlega útfærður pakkinn sem ég teiknaði á mig miðjan til að hylja það allra heilagasta, enda nýkominn úr kaldri sturtu. Loks gæti tónlistarmiðillinn Spotify orðið fyrir barðinu á óprúttnum aðilum. Ég hef ekkert að fela þar frekar en á öðrum samfélagsmiðlum: Wrecking Ball með Miley Cyrus er í alvöru uppáhaldslagið mitt. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Atli Fannar Bjarkason Vodafone-innbrotið Mest lesið Djöfulsins, helvítis, andskotans pakk Vilhjálmur H. Vilhjálmsson Skoðun Af hverju umræðan um Eurovision, Ísrael og jólin hrynur þegar raunveruleikinn bankar upp á Hilmar Kristinsson Skoðun Stóra vandamál Kristrúnar er ekki Flokkur fólksins Jens Garðar Helgason Skoðun Svörin voru hroki og yfirlæti Davíð Bergmann Skoðun Þeir sem hafa verulega hagsmuni af því að segja ykkur ósatt Þórður Snær Júlíusson Skoðun Ný flugstöð á rekstarlausum flugvelli? Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Reykjalundur – lífsbjargandi þjónusta í 80 ár Magnús Sigurjón Olsen Guðmundsson Skoðun Úthaf efnahagsmála – fjárlög 2026 Halla Hrund Logadóttir Skoðun Eurovision: Tímasetningin og atburðarásin sögðu meira en ákvörðunin Gunnar Salvarsson Skoðun Að klifra upp í tunnurnar var bara byrjunin Anahita Sahar Babaei Skoðun
Af hverju umræðan um Eurovision, Ísrael og jólin hrynur þegar raunveruleikinn bankar upp á Hilmar Kristinsson Skoðun
Af hverju umræðan um Eurovision, Ísrael og jólin hrynur þegar raunveruleikinn bankar upp á Hilmar Kristinsson Skoðun