Listin bara flýtur fram 30. nóvember 2013 13:00 "Ég hef fengist við listmálun í allnokkur ár, eða aðeins lengur en það,“ segir Aðalsteinn. Fréttablaðið/Vilhelm „
Ég hef fengist við listmálun í allnokkur ár eða aðeins lengur en það,“ segir Aðalsteinn Eyþórsson, þegar heilsað er upp á hann í Anarkíu listasal, norðanvert í Hamraborginni. Hann er að hengja upp verk sín á samsýningu ellefu listamanna sem verður opnuð í dag. Það eru olíumálverk frá þriggja ára tímabili, ýmist máluð á striga eða krossvið. Hann kveðst hafa fengist við listmálun í allnokkur ár eða aðeins lengur en það. Listastefnan er samt frekar óljós að hans sögn. „Algengt er að list núna sé svo mikið hugsuð, jafnvel djúphugsuð. Mín er frekar vanhugsuð. Flýtur bara fram,“ segir hann kæruleysislega. Aðalsteinn er meðal sjö kvenna og fjögurra karla með sýninguna í Anarkíu. Hvert og eitt þeirra fékk sinn vegg, misstóra – en veglega samt. Aðalsteinn segir um reynt fólk að ræða á myndlistarsviðinu og þótt bakgrunnurinn sé mismunandi þá tengist hópurinn Myndlistarskóla Kópavogs. „Allir hafa verið þar eitthvað, einhvern tíma,“ segir hann. Húsnæðið í Hamraborginni kom upp í hendur hópsins í vor og þar hafa sýningar verið frá því snemmsumars sem staðið hafa í mánuð hver. Þegar ekið er inn í Hamraborgina um brúna er beygt strax niður til vinstri og svo aðeins til hægri. Þar er gengið inn. Nánar má fræðast um hópinn og stefnu hans á vefsíðunni anarkia.is.
Menning Mest lesið Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Lífið Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Lífið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið Hvað veistu um… London? Lífið Jörðin undir fótum okkar framlag Íslands til Óskarsverðlauna Bíó og sjónvarp Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Lífið Gloria Steinem er látin Lífið „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Menning Úr verkfræðinni í listina: „Stundum verður maður bara að fylgja innsæinu“ Lífið samstarf Fleiri fréttir „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira