Frakkar mæra Eddu 27. nóvember 2013 12:00 Edda Erlendsdóttir píanóleikari
Geisladiskur Eddu Erlendsdóttur píanóleikara, þar sem hún leikur einleiksverk eftir Schubert, Liszt, Schönberg og Berg, hefur hlotið góðar viðtökur í Frakklandi. Undanfarið hafa birst dómar um diskinn í þremur virtum tónlistarblöðum og -miðlum og eru gagnrýnendur á einu máli um að leikur Eddu sé firnagóður. „Hún leikur á allt litróf blæbrigða og tilfinninga af mikilli spilagleði. Með djúpri lýrískri tjáningu býður Edda Erlendsdóttir okkur í innblásið ferðalag,“ segir Stéphane Friédérich í hausthefti Pianiste og gagnrýnendur ResMusica og Cadences taka í sama streng. „[Í] senn viðkvæm og ljóðræn túlkun þar sem frásagnargleði og næm stíltilfinning skín í gegnum hverja nótu og myndar um leið sannfærandi heild. Þetta er frábær diskur,“ segir Michel le Naour í októberútgáfu Cadences og Jean Luc Caron sagði í ResMusica í ágúst: „Þetta er einstaklega fallegt prógramm sem höfðar til breiðs áheyrendahóps.“
Menning Mest lesið Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Lífið Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Lífið Hvað veistu um… London? Lífið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið Jörðin undir fótum okkar framlag Íslands til Óskarsverðlauna Bíó og sjónvarp Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Lífið „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Menning Gloria Steinem er látin Lífið Úr verkfræðinni í listina: „Stundum verður maður bara að fylgja innsæinu“ Lífið samstarf Fleiri fréttir „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira