Viðhalda tuttugu ára hefð Friðrika Benónýsdóttir skrifar 25. október 2013 11:00 i Nemendurnir sem syngja eru allir á framhalds- eða háskólastigi í söngnáminu. Mynd/Jón Kristinn Cortez
Þetta er orðin tuttugu ára hefð,“ segir Ásrún Davíðsdóttir, aðstoðarskólastjóri Söngskólans í Reykjavík, um þann sið að nemendur skólans syngi einsöng í kirkjum á Reykjavíkursvæðinu nokkra sunnudaga í október og nóvember. „Upphaflega tengdum við þetta degi tónlistargyðjunnar Sesselju, sem er 22. nóvember, en kirkjurnar hafa náttúrulega alls kyns hefðir og við komum til móts við þær með því að færa sönginn á þann dag sem hentaði viðkomandi kirkju best.“ Það eru nemendur á framhalds- og háskólastigi í Söngskólanum sem sjá um sönginn. Þeir hafa þegar sungið tvo sunnudaga og munu halda því áfram næstu fjóra. Elísabet F. Eiríksdóttir, kennari við skólann, hefur veg og vanda af öllum undirbúningi. Aðspurð segir Ásrún að ekki sé neitt niðurneglt hvaða tónlist nemendurnir syngja, en auðvitað sé miðað við það að hún hæfi kirkjulegum athöfnum, án þess þó að vera endilega hefðbundin kirkjutónlist. „Þau eru gjarnan með hluta úr óratoríum eða messum eftir bæði innlenda og erlenda höfunda og verkefnavalið er mjög breitt.“
Menning Mest lesið Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Lífið Hvað veistu um… London? Lífið Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Lífið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Lífið Jörðin undir fótum okkar framlag Íslands til Óskarsverðlauna Bíó og sjónvarp „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Menning Carla Jeffery látin 33 ára að aldri Bíó og sjónvarp Úr verkfræðinni í listina: „Stundum verður maður bara að fylgja innsæinu“ Lífið samstarf Fleiri fréttir „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira