Tónlist

Stelpur spila djass með Kjass

Gunnar Leó Pálsson skrifar
Fanney Kristjánsdóttir söngkona hefur stofnað hljómsveitina Kjass en í henni eru tvær stelpur.
Fanney Kristjánsdóttir söngkona hefur stofnað hljómsveitina Kjass en í henni eru tvær stelpur. mynd/nanna dís
„Mig hafði lengi langað til að stofna djasshljómsveit og lét svo verða af því að lokum,“ segir Fanney Kristjánsdóttir söngkona en hún stofnaði djasshljómsveitina Kjass í sumar, sem er ein af örfáum djasshljómsveitum hér á landi sem skartar tveimur stúlkum.

„Ég held það sé ekki algengt að það séu tvær stelpur í svona djasshljómsveit en við Anna Gréta píanóleikari náum mjög vel saman,“ bætir Fanney við.

Hún skipar hana ásamt félögum sínum sem hún kynntist í Tónlistarskóla FÍH sem eru þau, Anna Gréta Sigurðardóttir sem spilar á píanó, Birgir Steinn Theodórsson bassaleikari, Mikael Máni Ásmundsson gítarleikari og Óskar Kjartansson trommuleikari.

Kjass er þessa dagana að semja efni fyrir plötu en stefnt er á að hefja upptökur fljótlega á næsta ári.

Meðlimir hljómsveitarinnar eru allir á framhaldsstigi í Tónlistarskóla FÍH að frátöldum slagverksleikaranum sem lauk burtfararprófi þaðan í vor.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×