Nýtt köku-og matarblogg: Uppskrift að myntuskyrköku Marín Manda skrifar 23. ágúst 2013 14:00 Tinna Björg er dugleg að blogga uppskriftum af mat og kökum.
Tinna Björg Friðþórsdóttir er mikil áhugamanneskja um mat og bakstur og heldur úti blogginu tinnabjorg.com. Þegar ég var barn dreymdi mig um að verða sjónvarpskokkur því uppáhaldssjónvarpsefnið mitt var matreiðsluþættirnir hans Sigga Hall. Ég var fimm eða sex ára þegar "Að hætti Sigga Hall“ fór í loftið og ég held ég hafi ekki misst af einum þætti,“ segir Tinna Björg Friðþjófsdóttir sem heldur úti nýju matar- og kökubloggi, tinnabjorg.com. Áhuginn á bakstri hefur verið til staðar frá blautu barnsbeini en móðir Tinnu Bjargar var heimavinnandi og kenndi henni mjög mikið. Rúlluterta með jarðarberjarjóma Tinna Björg er á þriðja ári í lögfræði við HR og segist undirbúa mataræðið vel fyrir vikuna og búa til nesti á hverjum degi. „Ég hef verið að elda og baka frá því að ég man eftir mér. Ég er á því að fólk eigi að borða svolítið af kolvetni. Fita fer ekki vel í mig og því er ég ekki sérstaklega hlynnt LKL.“ Uppskriftunum á blogginu segist Tinna Björg hafa sankað að sér í gegnum tíðina og bætir við að hennar heitasti draumur sé að gefa út bók. Myntuskyrkaka Myntuskyrkaka Botn 1 pakki Bastogne Duo kex frá Lu 100 g smjör Fylling 500 g hreint skyr 1 vanillustöng 1 dl flórsykur 250 ml þeyttur rjómi 4 blöð matarlím 4 msk. rjómi 100 g suðusúkkulaði Lauf af 6 myntustilkum Krem 50 g Pipp með piparmyntu 3 msk. rjómi Myljið kex í matvinnsluvél eða mortéli, bræðið smjör og blandið saman í skál. Þrýstið blöndunni í botninn á smelluformi og upp með hliðunum. Kælið í ísskáp á meðan fyllingin er gerð. Setjið skyr í skál, skerið vanillustöngina endilanga og skafið fræin úr henni með hnífsoddi. Þeytið vanillufræjum saman við skyrið og bætið flórsykri við. Ég kýs að nota vanillustangir eða -dropa. Blandið þeyttum rjóma varlega saman við skyrið. Látið matarlímsblöð liggja í skál með vatni þar til þau verða mjúk. Hellið svo vatninu af þeim og setjið í pott ásamt 4 msk. af rjóma. Bræðið saman við vægan hita og passið að matarlímsblandan brenni ekki. Kælið þar til blandan er orðin volg og hellið svo út í skyrfyllinguna í mjórri bunu, hrærið stanslaust á meðan. Saxið súkkulaðið og myntuna smátt og blandið saman við. Smyrjið fyllingunni á kexbotninn í smelluforminu og kælið þar til kakan er orðin stíf. Bræðið Pipp saman við 3 msk. af rjóma, kælið og hellið yfir kökuna. Passið að kremið sé ekki svo volgt að það bræði fyllinguna. Ég ber kökuna fram á botninum úr forminu en hægt er að klæða hann með smjörpappír, sem sniðinn hefur verið ofan í formið, til að auðvelda að færa kökuna af botninum. Mér þykir kakan verða ferskari með hreinu skyri, vanillustöng og flórsykri en til að einfalda uppskriftina má nota tilbúið vanilluskyr.
Kökur og tertur Uppskriftir Mest lesið Trylltist þegar hún varð fyrir árás byssumanna í Ríó Lífið Segir af sér eftir að Coldplay kom óvart upp um framhjáhaldið Lífið „Nú eruð þið farin að draga mig aftur inn í pólitíska umræðu“ Lífið Stór saga í litlum umbúðum: „Barnæskan mín er greypt í minnið“ Lífið Ingvar E. valinn besti leikarinn í Grikklandi Bíó og sjónvarp Grátbað um að fá að deyja en fagnar nú öllum framförum Lífið Óskandi að það væru fleiri börn með Downs á Íslandi Lífið Krakkatían: Barbie, forseti og flugstöð Lífið Sætar og seiðandi einhleypar sumarskvísur Lífið Charli xcx gifti sig Lífið Fleiri fréttir Óbarinn, með smjörklípu eða tabasco sósu: Alls konar harðfiskur fyrir útileguna Setur heilsuna í fyrsta sæti í sumar Sjá meira