Tónlist

Nýtur forréttinda í tónlist

Macklemore segist njóta forréttinda vegna litarhafts síns.
Macklemore segist njóta forréttinda vegna litarhafts síns. Nordicphotos/getty
Rapparinn Macklemore prýðir forsíðu næsta heftis Rolling Stone. Í viðtali við tímaritið kveðst hann meðvitaður um þau forréttindi sem hann nýtur sem hvítur tónlistarmaður.

„Ég veit hvernig samfélagið virkar. Ég blóta frá mér allt vit í laginu Thrift Shop en þrátt fyrir það finnst foreldrum í lagi að börn sín hlusti á lagið, af því að ég er hvítur. Hefði ég notið þessarar velgengni hefði ég verið svartur? Ég held að svarið sé nei,“ sagði Macklemore um tónlist sína og velgengni plötunnar The Heist.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×