Tónlist

Meira popp og indí hjá 1860

Freyr Bjarnason skrifar
Hljómsveitin 1860 hefur gefið út plötuna Artificial Daylight.
Hljómsveitin 1860 hefur gefið út plötuna Artificial Daylight. mynd/Þormar vignir gunnarsson
Hljómsveitin 1860 hefur gefið út plötuna Artificial Daylight.

Það kveður við nýjan tón á plötunni. Árið 2011 sendi sveitin frá sér þjóðlagaplötuna Sagan en þá var 1860 tríó og trommur í litlu hlutverki. Á nýju plötunni eru meðlimir orðnir fimm og trommur og rafhljóðfæri meira áberandi þótt þjóðlagaáhrifin skíni enn þá í gegn.

„Það var svo sem ekkert meðvituð ákvörðun um að taka breytingum, nema að fá inn meiri ryþma með trommum og bassa. Á sama tíma verður þetta bæði meira popp og meira indí og færir sig örlítið frá þjóðlagatónlistinni,“ segir söngvarinn Hlynur Júní Hallgrímsson. „Sem fimm manna band getum við leikið okkur meira með útsetningar.“

1860 hélt nýverið röð tónleika á Norður- og Austurlandi en nú er komið að höfuðborginni. Sveitin spilar órafmagnað á Café Flóru í Grasagarðinum ásamt Brother Grass í kvöld. Einnig verða tónleikar á Café Rósenberg þriðjudaginn 27. ágúst. Útgáfutónleikar verða svo haldnir 19. september í Iðnó.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×