Tónlist

Ásgeir og Sálin á menningarnótt

Freyr Bjarnason skrifar
Sálin spilar í annað sinn á menningarnæturtónleikum Rásar 2.
Sálin spilar í annað sinn á menningarnæturtónleikum Rásar 2.
Ásgeir Trausti, Sálin hans Jóns míns, Hjaltalín og Kaleo spila á Tónaflóði, menningarnæturtónleikum Rásar 2, við Arnarhól 24. ágúst.

Þetta verður í tíunda sinn sem tónleikarnir eru haldnir. „Þetta er stórt og mikið og við erum afskaplega stolt af þessu,“ segir útvarpsmaðurinn og skipuleggjandinn Ólafur Páll Gunnarsson.

Hann fagnar því að Sálin spili í ár en hún steig einmitt á svið á fyrstu menningarnæturtónleikunum. „Sálin er ein mest spilaða hljómsveitin í sögu Rásar 2 og hefur verið starfandi næstum því jafnlengi og Rás 2. Það hefur farið minna fyrir hljómsveitinni undanfarið en oft áður en þjóðin elskar Sálina sína enn þá,“ segir Óli Palli.

Kaleo hefur átt eitt vinsælasta lag Rásar 2 í sumar, Vor í Vaglaskógi, og ekki þarf að fara mörgum orðum um vinsældir Ásgeirs Trausta og Hjaltalín. Tónleikarnir á Arnarhóli leggjast mjög vel í Óla Palla. „Þessir tónleikar hafa verið vettvangur fyrir fólk til að upplifa stóra tónleika. Þessi samkennd er svo ólýsanleg. Þegar þúsundir standa saman og upplifa sama hlutinn á sama tíma, þá gerist eitthvað.“

Útvarpsstöðin Bylgjan verður með tónleika á Ingólfstorgi á menningarnótt. Þar koma m.a. fram Stuðmenn, Björgvin Halldórsson, Á móti sól og Dikta. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×