Tónlist

Nýdönsk í hljóðver

Jón Ólafsson, meðlimur í Nýdönsk.
Jón Ólafsson, meðlimur í Nýdönsk.


Tónlistarmaðurinn Jón Ólafsson tilkynnti á Facebook-síðu sinni að hljómsveitin Nýdönsk hefði haldið í hljóðver í gær.

Jón lét ekki mikið uppi um hljóðverstímann en sagði þó að ný og spennandi áskorun biði þeirra félaga. Einnig lét hann í ljós að ef vel tækist til gæti svo farið að aðdáendur sveitarinnar fengju að njóta afrakstursins innan tíðar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×