Viðskipti erlent

Stærsta auglýsingafyrirtæki í heimi

Lovísa Eiríksdóttir skrifar
Maurice Levy, stjórnarformaður Publicis Group og John Wren, stjórnarformaður Omicom takast í hendur eftir að samrunninn varð að veruleika.
Maurice Levy, stjórnarformaður Publicis Group og John Wren, stjórnarformaður Omicom takast í hendur eftir að samrunninn varð að veruleika. Mynd/afp
Bandaríska fyrirtækið Omnicom og franska fyrirtækið Publicis hafa nú sameinast í eitt stórt alþjóðlegt auglýsingafyrirtæki. Samruninn mun gera fyrirtækið að hinu stærsta sinnar tegundar í heiminum og er talið að virði þess nemi rúmlega 35 milljörðum Bandaríkjadala.

Fyrirtækið ætlar að starfrækja höfuðstöðvar sínar bæði í París og New York og munu um 130 þúsund manns koma til með að starfa hjá fyrirtækinu. Fyrirtækin sjá stór tækifæri í samrunanum og talið er að þau eigi eftir að spara um 500 milljónir Bandaríkjadala við samrunann. Áætluð sameining mun taka gildi að fullu í mars á næsta ári.

Forstjóri Publicis, Maurice Levy, segir í samtali við BBC fréttastofu að upplýsingatækni og markaðssetning hafi tekið stórkostlegum breytingum á undanförnum árum sem hafi veruleg áhrif á hegðun neytenda. Hann segir breytingarnar kalla á öðruvísi þjónustu hjá auglýsingafyrirtækjum. Levy segir að með samruna fyrirtækjanna og sameiginlegri þekkingu þeirra geti þau boðið viðskiptavinum sínum upp á enn betri þjónustu á öllum sviðum, í takt við tímann.

Omnicom er leiðandi auglýsingafyrirtæki í Bandaríkjunum, þjónustar um 5.000 viðskiptavini í yfir 100 löndum og er í öðru sæti yfir stærstu auglýsingafyrirtæki í heiminum. Publicis kemur fljótt á eftir Omnicom sem þriðja stærsta sinnar tegundar í heiminum og er einnig með viðskipti í yfir 100 löndum.

Breska fyrirtækið WPP hefur verið í forystu fyrirtækja af þessari tegund en mun nú líklega falla um eitt sæti í mars á næsta ári.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×