Viðskipti erlent

Stærstir í vindmyllugeiranum

Lovísa Eiríksdóttir skrifar
Orkuframleiðsla frá vindmyllum hefur tvöfaldast í Evrópu síðan í fyrra sumar.
Orkuframleiðsla frá vindmyllum hefur tvöfaldast í Evrópu síðan í fyrra sumar. Mynd/Getty
Danska orkufyrirtækið DONG og þýska fyrirtækið Siemens eru í forystu í vindmyllubransanum í Evrópu samkvæmt nýrri skýrslu frá The European Wind Energy Association (EWEA).



Framleiðsla á orku frá vindmyllum á sjó í Evrópu hefur tvöfaldast frá því í fyrra og nægir aukningin til að sjá milljónum heimila fyrir raforku.

DONG hefur sett upp flestar aflands vindmyllur í heimsálfunni en Siemens hefur framleitt mikinn meirihluta af vindmyllum í Evrópu og er stærsti birginn á markaðnum.

Endurnýjanlegir orkugjafar eru heldur betur að sækja í sig veðrið en sú þróun tengist helst 2020 markmiði Sameinuðu þjóðanna um að 20 prósent af allri orku í Evrópu verði framleidd úr endurnýjanlegum orkugjöfum.

Eins og frægt er orðið hefur Landsvirkjun reist tvær vindmyllur í tilraunarskyni norðan við Búrfell og rannsakar nú hvort hægt sé að breyta íslenska rokinu í verðmæta auðlind.

Lokið var við uppsetningu vindmyllnanna í desember á síðasta ári og ætti áætluð raforkuframleiðsla þeirra að nægja til að sjá um 1.200 heimilum fyrir rafmagni til daglegra nota.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×