Flugvélaði maðurinn Stígur Helgason skrifar 24. maí 2013 06:00 Það er bara tvennt sem ég get sagt við fólk sem gerir það undantekningalítið alveg agndofa. Annað er að mér finnist gaman í flugvélum. Það virðist ekki vera algeng skoðun, sem er óskiljanlegt. Þegar þetta er skrifað eru örfáar klukkustundir í að ég fari í flugferð og tilhlökkunin er að bera mig ofurliði. Ég hlakka auðvitað til ferðarinnar sjálfrar og samneytis við förunautana, en ekki síður þess að geta hreiðrað um mig í mjúku flugvélarsæti í þrjá til fjóra tíma, hallað aftur bakinu eftir flugtak og notið fullkomins áhyggjuleysis með góða rapptónlist í eyrunum og jafnvel lélega flugvallarbók á plastborðinu fyrir framan mig, við hliðina á hálffullu máli af kóki. Ég var líka að eignast töfratækið iPad og mér hefur verið sagt að fátt veiti meiri sælu en að spila Candy Crush á flugi. Ég trúi því vel. Besta tilfinning sem ég þekki er að þrýstast niður í sætið þegar vélin tekur á span eftir brautinni andartökum áður en hún hefur sig á loft og drunurnar úr hreyflunum slæva á manni heilabúið. Ég tel mig líka búa yfir frumstæðum skilningi á eðlisfræðinni að baki flugvísindum og engin flugslysamynd getur innrætt mér hræðslu við þennan ferðamáta, sem mér hefur reyndar alltaf fundist jafnóskiljanleg og það að finnast leiðinlegt að fljúga. Ég hugsa að ég gæti lesið útskriftina úr svarta kassanum úr Air France-vélinni sem fórst úti fyrir Brasilíu, æsilegustu og dramatískustu lesningu lífs míns, um borð í flugvélinni án þess að líða illa með það. Ég held ég geri það bara. Svo er það ókyrrðin. Vonandi fáum við ókyrrð. Þá fær maður fiðring í magann í bónus – eins og í skemmtigarði. Það eina sem ég kvíði er lendingin. Ekki lendingin sem slík svo sem, heldur að þurfa að standa upp og yfirgefa vélina þegar ég kem á leiðarenda. Ætli maður muni í framtíðinni geta pantað sér flugferð með sólarorkuknúnu loftfari sem tekur aldrei endi? Hitt sem gerir fólk nánast alltaf alveg rasandi er skoðun mín á sjónvarpsþáttunum Seinfeld. Meira um það einhvern tímann síðar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Stígur Helgason Mest lesið Af þreyttasta frumvarpi íslenskrar þingsögu Árni Guðmundsson Skoðun Skörum fram úr í skaðlegu skattaumhverfi Elliði Vignisson Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun Hvers vegna skiptir bókun 35 máli? Eiríkur S. Svavarsson Skoðun Börn þurfa úrræði, ekki innantóm loforð Ása Berglind Hjálmarsdóttir Skoðun Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun Var Stonehenge sláturhús? Ása Hlín Benediktsdóttir Skoðun Hver ætlar að hjúkra þér? Helga Rósa Másdóttir Skoðun Undir sömu stjörnu – ópera fyrir alla þjóðina Sævar Þór Halldórsson Skoðun Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir Skoðun
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun
Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir Skoðun
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun
Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir Skoðun