Baltasar meðal leiðbeinenda Sumarbúðir RIFF-hátíðarinnar í Skagafirði í maí. 15. mars 2013 06:00 Baltasar Kormákur ætlar að leiðbeina ungu kvikmyndagerðarfólki í handritagerð í sumarbúðum RIFF í maí.
Leikstjórinn Baltasar Kormákur verður meðal leiðbeinenda í sumarbúðum RIFF, alþjóðlegu kvikmyndahátíðarinnar í Reykjavík, í handritagerð fyrir lengra komna. Námskeiðið fer fram í Skagafirði dagana 21.-25. maí næstkomandi. Peter Wintonick, heimildarmyndaframleiðandi frá Kanada, verður einnig leiðbeinandi en verið er að ganga frá samningum við fleiri sem verða kynntir bráðlega. Þar á meðal standa yfir samningaviðræður við þekkta norræna leikstjóra. Sumarbúðir eiga að vera vettvangur fyrir ungt afreksfólk í kvikmyndagerð til að bæta sig í handritaskrifum en þátttakendur verða að hafa lokið við minnst eina stuttmynd og vera að þróa næstu verkefni. Þegar hafa umsóknir borist frá Bandaríkjunum, Rúmeníu, Síle, Egyptalandi og víðar. Áhugasömum er bent á að senda ferilskrá og stutta umsókn þar sem þeir segja frá áhugasviði sínu og list á netfangið summer@riff.is fyrir 20. mars.
Menning Mest lesið „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Lífið Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Lífið Hvað veistu um… London? Lífið Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Lífið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Lífið Jörðin undir fótum okkar framlag Íslands til Óskarsverðlauna Bíó og sjónvarp „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Menning Carla Jeffery látin 33 ára að aldri Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira