Top Gear menn útnefndu sigurvegara í mörgum flokkum þó Fiesata bíllinn sé aðalsigurvegarinn. Besti ofurbíllinn er McLaren P1 og kemur sú tilnefning ekki á óvart þar sem hann er breskur, en ekki er víst að þýskir bílablaðamenn hefði sniðgengið Porsche 918 Spyder í þeim flokki bíla.
McLaren flokkast sem „Hypercar“, en í flokknum „Supercar“ töldu Top Gear menn Ferrari 458 Speciale bestan. Richard Hammond fékk sérstaklega að velja sinn bíl ársins og varð Porsche 911 GT3 fyrir valinu hjá honum. Blæjubíll ársins var Jaguar F-Type, fjölskyldubíll ársins var Citroën C4 Picasso, „Musclecar“ ársins var Chevrolet Corvette Stingray, lúxusbíll ársins Mercedes Benz S-Class, ofurlúxusbíll ársins Rolls Royce Wraith.
Bestu kaup ársins völdu þeir hjá Top Gear Hyundai i10, keppnisbíl ársins Peugeot 208 T16 bílinn sem Sebastian Loeb rústaði Pikes Peak keppninni á þetta árið og grænasta bíl ársins völdu þeir BMW i3. Jeppi ársins er Range Rover Sport, uppfinning ársins er Volkswagen XL-1 og sem bílaframleiðanda ársins völdu þeir Porsche.



