Golf

Stjórnin hætti eftir að varaforsetinn spilaði golf með mafíuforingja

Ryo Ishikawa fær nýjan forseta hjá golfsambandinu fljótlega.
Ryo Ishikawa fær nýjan forseta hjá golfsambandinu fljótlega.
Það varð uppi fótur og fit í Japan á dögunum er upp komst að tveir stjórnarmenn hjá japanska golfsambandinu hefðu spilað golf með mafíuforingja.

Varaforseti golfsambandsins og einn stjórnarmeðlimur spiluðu golf og snæddu með einum af foringjum yakuza-samtakanna.

Það er ekki bara hneykslanlegt í Japan heldur er það hreinlega brot á lögum sambandsins.

Í þeirri von að endurvekja traust á golfsambandinu þá ætlar öll stjórnin að segja af sér. Það eru ekki nema 91 í stjórninni og það verður því nokkur vinna að finna nýja stjórn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×