Golf

Valdís Þóra komst einu skrefi nær Evrópumótaröðinni

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Valdís Þóra Jónsdóttir.
Valdís Þóra Jónsdóttir. Mynd/Daníel
Skagastúlkan Valdís Þóra Jónsdóttir komst áfram úr fyrsta stigi úrtökumóts inn á Evrópumótaröð kvenna í golfi en hún endaði í 18. sæti af 54 kylfingum á móti í Marokkó.

Valdís Þóra þurfti að ná einu af 23 efstu sætunum í mótinu og það tókst hjá henni en hún var fimm höggum frá 24. sætinu.Valdís Þóra lék á 77 höggum á lokadegi mótsins eða á fjórum höggum yfir pari. Hún lék hringina fjóra á 312 höggum eða 20 höggum yfir pari.

Valdís lét ekki slæman annan hring spilla fyrir sér (8 högg yfir pari á föstudaginn) þar sem hún tapaði þremur höggum á síðustu holunni. Hún lék tvo síðustu hringina á 76 og 77 höggum og á enn möguleika á að komast inn á Evrópumótaröðina.

Lokaúrtökumótið ferm fram í næstu viku í Marokkó. Þar verða leiknar 72 holur eða fjórir hringir og 60 efstu kylfingarnir spila síðan einn hring til viðbótar þar sem að 30 efstu tryggja sér keppnisrétt á Evrópumótaröðinni.  

„Það er gott að þessi áfangi er búinn en við áttum von á að +23 yfir pari myndi duga til að komast áfram,“ sagði Valdís Þóra í viðtali við kylfingur.is en Tinna Jóhannsdóttir var henni til aðstoðar á þessu móti. „Tinna er á heimleið og Arnar bróðir minn er á leiðinni út og tekur við.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×