Golf

Varaforsetinn vill verða forseti Golfsambandsins

Haukur Örn Birgisson.
Haukur Örn Birgisson.
Haukur Örn Birgisson hefur ákveðið að gefa kost á sér í komandi forsetakjöri hjá Golfsambandi Íslands. Jón Ásgeir Eyjólfsson mun ekki gefa kost á sér áfram.

Í fréttatilkynningu frá Hauki kemur fram að hann hafi starfað fyrir golfhreyfinguna frá árinu 2001. Hann hefur verið varaforseti sambandsins frá árinu 2007.

Forsetakjörið fer fram þann 23. nóvember næstkomandi.

Yfirlýsing Hauks Arnar:

Kæru félagar.

Ég hef ákveðið að gefa kost á mér í komandi forsetakjöri Golfsambands Íslands sem fram fer á golfþingi þann 23. nóvember næstkomandi.

Störf mín fyrir golfhreyfinguna má rekja til ársins 2001 og frá þeim tíma hefur golfíþróttin skipað stórt hlutverk hjá mér, bæði í leik og starfi. Samhliða stjórnarstörfum mínum hjá Golfklúbbnum Oddi árið 2005 var ég kosinn til stjórnarsetu hjá Golfsambandi Íslands en frá árinu 2007 hef ég verið varaforseti sambandsins. Þá hef ég einnig sinnt stjórnarstörfum á vegum Evrópska golfsambandsins, EGA, undanfarin þrjú ár.

Golfíþróttin hefur átt einstaklega góðu gengi að fagna undanfarinn áratug. Fjöldi iðkenda hefur vaxið jafnt og þétt og hafa skráðir félagar í golfklúbbum aldrei verið fleiri. Þennan árangur má þakka óeigingjörnu framlagi ykkar sem starfa í tengslum við íþróttina, oftar en ekki í sjálfboðavinnu. Það hefur verið ómetanlegt fyrir mig að taka þátt í því starfi með ykkur.

Jón Ásgeir Eyjólfsson hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér áfram sem forseti sambandsins. Ég er afar þakklátur fyrir þá hvatningu sem ég hef fengið til þess að taka við af honum og lýsi mig reiðubúinn, með ykkar stuðningi, til að leiða starf Golfsambands Íslands næstu ár.  

Kær kveðja,

Haukur Örn Birgisson




Fleiri fréttir

Sjá meira


×