Golf

Járnin að gera Birgi Leifi erfitt fyrir

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Birgir Leifur Hafþórsson.
Birgir Leifur Hafþórsson. Nordicphotos/Getty
Birgir Leifur Hafþórsson, kylfingur úr GKG, er í 46.-52. sæti að loknum tveimur hringjum á úrtökumóti fyrir Web.com mótaröðina. Keppt er á Gardens Mountain vellinum í Georgíu í Bandaríkjunum.

Skagamaðurinn lék annan hringinn í gær á 73 höggum eða einu höggi yfir pari. Hann er á pari samanlagt eftir að hafa leikið fyrsta hringinn á einu höggi undir pari. Þrjátíu efstu kylfingarnir komast áfram.

„Það er sama baslið með járnahöggin og ég er að gera mér þetta aðeins og erfitt. Aðstæður voru mun erfiðari í dag en í gær, mikill vindur, en ég á að gera betur,“ segir Birgir Leifur í samtali við Kylfing.is.

Þriðji hringurinn verður leikinn í dag en stöðuna í mótinu má sjá hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×