Tónlist

Nýja myndbandið frá Barða og JB Dunckel

Ólöf Skaftadóttir skrifar
Fyrsta tónlistarmyndband hljómsveitarinnar Starwalker er frumsýnt á Vísi í dag.

Starwalker er samstarf hins íslenska Barða Jóhannssonar, oftast kenndur við Bang Gang, og JB Dunckel, eins forsprakka hinnar geysivinsælu rafhljómsveitar Air. Þeir gáfu út fyrsta lag sitt saman fyrr í vikunni, en lagið ber heitið Bad Weather.

Myndbandið er tekið upp á Íslandi, í Námaskarði, Dimmuborgum og á Laugum. Það var skotið af Sævari Guðmundssyni, sem leikstýrði því ásamt ljósmyndaranum Jeaneen Lund.

Hljómsveitin Starwalker stefnir á útgáfu EP-skífu á næstunni.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×