Viðskipti erlent

Breskir bankar borga 200 milljarða vegna Icesave

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
Upphæðin verður greidd í þrennu lagi á jafn mörgum árum.
Upphæðin verður greidd í þrennu lagi á jafn mörgum árum. samsett mynd
Breskir bankar þurfa að greiða rúmlega milljarð punda vegna greiðslu breskra stjórnvalda á innistæðum sparifjáreigenda í íslenskum bönkum eftir bankahrunið 2008. Fréttastofa Sky fjallar um málið í dag en upphæðin jafngildir rúmum 200 milljörðum króna. Sparifjáreigendum voru greiddar bætur frá innstæðutryggingasjóði en breska ríkið lánaði til þess fé til að tryggja það að allir fengju sitt til baka.

„Breskir bankar borga í dag reikninginn fyrir einn milljarð punda sem breska ríkið lagði út vegna íslensku bankakreppunnar,“ segir Anthony Browne hjá Samtökum breskra fjármálafyrirtækja (BBA). „Við vonum að þetta skapi traust hjá almenningi þess efnis að ef kemur til annars bankahruns eru innstæður þeirra tryggðar.“

Upphæðin verður greidd í þrennu lagi á jafn mörgum árum en sérfræðingar segja greiðsluna ekki geta komið á verri tíma fyrir bankana sem séu enn að byggja sig upp eftir hrunið. Hins vegar séu fréttirnar að sjálfsögðu góðar fyrir sparifjáreigendur og skapi hjá þeim traust í garð bankakerfisins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×