Viðskipti erlent

Nýjasti snjallsími Sony með ofurmyndavél

Jón Júlíus Karlsson skrifar
Sony Xperia Z1 var frumsýndur í gær.
Sony Xperia Z1 var frumsýndur í gær. Mynd/SONY
Sony kynnti með stolti nýja Sony Xperia Z1 símann sem var kunngerður á IFA raftækjasýningunni í Berlín í gær. Það sem vekur helst athygli við þennan nýja síma er að hann er vatnsheldur og hefur jafnframt 20,7 megapixla myndavél.

Myndavélin er fyrirferðamikil í kynningu Sony á símanum en Xperia Z1 er sagður taka forskot á bæði Apple og Samsung á því sviði. Símanum fylgir linsa sem smellt er á símann sem bætir myndgæði talsvert. Þessa linsu má einnig nota á aðra síma.

Ekki kemur fram hvenær Xperia Z1 síminn fer í sölu né hvert söluverð verður. Að neðan má sjá áhugavert myndband þar sem þessi nýji sími er skoðaður.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×