Golf

Myndasyrpa af Obama í golfi | Lék með Larry David

Obama sýnir hér lipur tilþrif á flötinni. Hann var í golfskóm merktum hafnaboltaliðinu Chicago White Sox.
Obama sýnir hér lipur tilþrif á flötinni. Hann var í golfskóm merktum hafnaboltaliðinu Chicago White Sox. mynd/ap
Barack Obama Bandaríkjaforseti er mikill íþróttaáhugamaður og spilar talsvert oft körfubolta. Hann er einnig á kafi í golfinu.

Forsetinn tók sér þá vikufrí til þess að spila á Marth's Vineyard um daginn. Hann þykir nokkuð liðtækur.

Obama spilaði meðal annars golf með Tiger Woods á dögunum en þá fengu fjölmiðlar ekki að mynda forsetann. Hann leyfði þó myndatöku núna og tilþrifin voru nokkuð góð eins og sjá má á myndunum hér að ofan.

Þá lék hann golf meðal annars með bankastjóra World Bank og leikaranum og handritshöfundinum Larry David sem meðal annars skrifaði Seinfeld-þættina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×