Viðskipti erlent

15 olíufélög hafa keypt gögn vegna Jan Mayen

Kristján Már Unnarsson skrifar
Íslendingar eiga 25% þátttökurétt á vænlegasta hluta Norðmanna.
Íslendingar eiga 25% þátttökurétt á vænlegasta hluta Norðmanna.
Fimmtán olíufélög hafa keypt rannsóknargögn frá Olíustofnun Noregs vegna hafsvæðanna við Jan Mayen og á suðausturhluta Barentshafs. Sala þeirra hófst fyrir tveimur mánuðum vegna ákvörðunar norskra stjórnvalda að opna svæðin til olíuleitar.

Gögnin eru seld saman í einum pakka og innihalda einkum hljóðbylgjumælingar sem fram fóru á árunum 2011 og 2012. Verðið er 12 milljónir norskra króna, eða 240 milljónir íslenskra, en síðan leggst virðisaukaskattur ofan á. Eldri hljóðbylgjumælingar á svæðunum, sem ná aftur til ársins 1974, fylgja einnig með í kaupunum.

Rannsóknargögn á norska hluta Jan Mayen-svæðisins snerta íslenska hagsmuni vegna ákvæðis í samningi þjóðanna um gagnkvæman 25% nýtingarrétt í lögsögu hvors annars á tilteknu svæði. Þá má ætla að olíufélög sem áhuga hafa á Noregshluta Jan Mayen-hryggjarins beini jafnframt sjónum að þeim hluta sem er Íslandsmegin, það er Drekasvæðinu.

Í fréttatilkynningu Olíustofnunar Noregs kemur fram að eftirfarandi olíufélög hafa keypt rannsóknargögnin:

Chevron Norge AS

Idemitsu Petroleum Norge AS

Det norske oljeselskap ASA

AS Norske Shell

Total E&P Norge AS

Lundin Norway

Tullow Oil Norge AS

Statoil Petroleum AS

Dong E&P Norge AS

ConocoPhillips Skandinavia AS

ENI Norge AS

BP Norge AS

OMV (Norge)

GDF SUEZ E&P Norge AS

BG Norge Ltd






Fleiri fréttir

Sjá meira


×