Golf

Tiger fjórum höggum frá sjötta sigrinum

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
MYND:NORDIC PHOTOS/GETTY
Tiger Woods er fjórum höggum á eftir á Matt Kuchar og Gary Woodland sem eru efstir fyrir lokahringinn á Liberty National mótinu á PGA mótaröðinni í golfi sem er fyrsta mótið í FedEx Cup úrslitakeppninni.

Kuchar og Woodland eru á 12 höggum undir pari. Kevin Chappell er höggi á eftir í þriðja sæti en Woods kemur þar næst á eftir á átta undir pari eftir að hafa leikið á 69 höggum eða þremur undir pari á þriðja keppnisdegi. David Lynn er einnig á 8 höggum undir pari.

Chappell kom sér mjög óvænt í annað sæti þegar hann lék á 62 höggum, sem er vallarmet, á þriðja keppnisdegi.

Tiger Woods hefur unnið fimm PGA mót á árinu af tólf og þarf að leika mjög vel til að eiga möguleika á sjötta sigrinum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×