Golf

Jafnaði metið og er efstur

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Bandaríkjamaðurinn Jason Dufner er með forystu að loknum tveimur hringjum á PGA-meistaramótinu á Oak Hill vellinum í New York-fylki vestanhafs.

Dufner spilaði annan hringinn í gær á 63 höggum eða sjö höggum undir pari. Hann jafnaði besta hring á risamóti sem er 63 högg. Dufner er samanlagt á níu höggum undir pari.

Dufner hefur tveggja högga forystu á landa sína Matt Kuchar, Jim Furyk og Ástralann Adam Scott. Þremenningarnir eru á sjö höggum undir pari. Englendingurinn Justin Rose og Svíinn Henrik Stenson koma næstir á sex undir samanlagt.

Bandaríkjamaðurinn Tiger Woods er á einu höggi yfir pari samanlagt. Hann er því tíu höggum á eftir landa sínum Dufner og ólíklegt að honum takist að vinna þann mun upp á tveimur hringjum þó það sé ekki útilokað.

Stöðu efstu kylfinga má sjá hér að neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×