Golf

Westwood leiðir á Opna breska fyrir lokahringinn

Stefán Árni Pálsson skrifar
Tiger Woods og Lee Westwood léku saman í dag.
Tiger Woods og Lee Westwood léku saman í dag. Mynd / Getty Images
Englendingurinn Lee Westwood leiðir á Opna breska meistaramótinu fyrir loka hringinn sem fram fer á morgun á Muirfield-vellinum í Skotlandi en hann er samanlagt á þremur höggum undir pari.

Westwood hefur tveggja högga forskot á Hunter Mahan og Tiger Woods sem koma jafnir í öðru sæti.

Westwood og Woods léku saman í holli í dag og lék Westwood nokkuð vel. Það má því búast við baráttu milli þeirra félaga á morgun um sigur á Opna breska.

Spánverjinn Miguel Angel Jimenez sem hóf þriðja hring í forystu lék illa í dag eða á sex höggum yfir pari og er í 11. sæti keppninnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×