Viðskipti erlent

Ósáttur við Jane Austen

Tíu punda seðillinn mun koma til með að líta svona út árið 2017.
Tíu punda seðillinn mun koma til með að líta svona út árið 2017.
Lögreglan í Bretlandi handtók í gær 21 árs gamlan mann vegna færslna á Twitter þar sem hann lýsti yfir andúð sinni á því að andlit Jane Austen verði prentað á peningaseðla þar í landi. Illorðaðar færslurnar beindust að konu að nafni Caroline Criado-Perez, en hún var ein þeirra sem barðist fyrir því að fleiri konur myndu prýða pundið en raun ber vitni.

Englandsbanki tilkynnti um breytingarnar á miðvikudaginn var og mun Austen leysa Charles Darwin af hólmi á tíu punda seðlinum árið 2017.

Maðurinn byrjaði að setja færslur inn á Twitter strax eftir tilkynninguna. Hann tísti 50 sinnum á 12 klukkustundum þar sem hann lét gamminn geysa og lét svívirðingum rigna yfir Criado-Perez. Hann  notaði gróft orðalag í færslunum, og í einni þeirra hótaði hann að nauðga konunni. Lögreglan brást því við og handtók manninn, sem er búsettur í Manchester.

Peningaeðlar eru endurhannaðir reglulega í Bretlandi í því skyni að viðhalda öryggi og koma í veg fyrir peningafalsanir.  Austen er þriðja konan síðan 1970 sem hefur verið valin til að prýða breska pundið.

Frá málinu er greint á vef Fox News.


Tengdar fréttir

Jane Austen prýðir pundið

Jane Austen mun prýða tíu punda seðilinn eftir breytingar sem gerðar verða á breskum peningaseðlum árið 2017. Hún mun leysa Charles Darwin af hólmi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×