Viðskipti erlent

Telja rússnesku vetrarólympíuleikana risavaxna svikamyllu

Tveir af leiðtogum stjórnarandstöðunnar í Rússlandi segja að undirbúningur og bygging mannvirkja fyrir vetrarólympíuleikana í Sochi sé risavaxin svikamylla. Þegar hafi allt að 30 milljörðum dollara, eða um 3.600 milljörðum kr., verið stolið í tengslum við undirbúning leikanna.

Leiðtogarnir sem hér um ræðir, Boris Nemtsov og Leonid Martynyuk, segja einnig að þessir ólympíuleikar verði þeir dýrustu í sögunni og muni kosta yfir 50 milljarða dollara.

Fjallað er um málið á vefsíðu BBC. Þar segir að fyrrgreindir leiðtogar hafi sent frá sér skýrslu um málið. Þar komi m.a. fram að skortur á samkeppni og leynd hafi hleypt kostnaðinum við byggingu ólympíuþorpsins upp úr þakinu og að það hafi aðeins komið nánum viðskiptafélögum Vladimir Putins Rússlandsforseta til góða.

Rússneskir embættismenn hafa hafnað þeim ásökunum sem koma fram í skýrslunni og segja hana ranga. Nemtsov segir hinsvegar í samtali við Reuters að hann ætli að fara fram á opinbera rannsókn á málinu. Hann segist einnig undrandi á þeirri ákvörðun að halda vetrarólympíuleikana í nánast hitabeltisloftslagi í borg við Svarta hafið.

Mark Adams talsmaður Alþjóðlegu Ólympíunefndarinnar segir að svo virðist sem rússnesk yfirvöld taki alvarlega allar ásakanir um spillingu í kringum leikana í Sochi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×