Lamborghini Gallardo springur á bensínstöð Finnur Thorlacius skrifar 31. maí 2013 10:30
Þeir sem hefðu hugsað sér að kaupa notaðan Lamborghini Gallardo ættu að fara að drífa sig í kaupunum því þeim fer óðum fækkandi. Fækkunin stafar helst af því að þeim er hætt við að springa í loft upp án nokkurrar skýringar. Það henti einmitt þennan bíl en eigandi hans renndi honum upp að bensíndælu, drap á bílnum og hóf að dæla bensíni á hann en þá sprakk vélin í bílnum í loft upp og gereyðilagði hann. Eigandann sakaði ekki, né heldur sprakk öll bensínstöðun í loft upp í kjölfarið. Kannski ættu áhugasamir kaupendur sem vilja eignast “hot” bíl að hafa það í huga að þessi er kannski of “hot”, því mörg önnur dæmi eru um að þessi gerð springi í loft upp án sýnilegra skýringa. Þó má kannski hugga sig við það að Lamborghini endurgreiðir líklega bíla sem enda líf sitt svona. Í myndskeiðinu sést annar Lamborghini Gallardo fuðra upp í miklu eldhafi á hraðbraut fyrir 3 árum.
Mest lesið Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Erlent Haraldur V Noregskonungur er látinn Erlent Mættu í skólann og beittu nemanda ofbeldi Innlent Er sagður hafa lagt spilin á borðið varðandi Úkraínu Erlent Nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Innlent „Við sækjum ekki um aðild nema vegna þess að við viljum ganga inn“ Innlent Hnífjafnt á laugardag eða meiri munur en allir búast við? Innlent Margmenni fyrir utan höllina og blómvendir uppseldir Innlent