Viðskipti erlent

Rúgviskí að verða eitt vinsælasta viskíið í heiminum

Bandarískt rúgviskí þótti eitt sinn hrjúfur og göróttur drykkur en er í dag að verða eitt vinsælasta viskí í heiminum.

Þessi þróun hefur átt sér stað á undanförnum tveimur árum að því er kemur fram í úttekt Bloomberg fréttaveitunnar á stórauknum vinsældum rúgviskís eða ryewhiskey  eins og það heitir á frummálinu.

Galdurinn að baki þessari velgengni er að láta þetta viskí eldast í tunnum árum saman. Raunar notar einn framleiðandi karabískar rommtunnur og segir það gefa þessu viskí aukalega sætan keim af brenndum sykurreyr.

Rúgvíski var eitt fyrsta brennda áfengið sem evrópsku landnemarnir framleiddu í Bandaríkjunum löngu áður en burbon varð til. Það þótti ætíð hrátt á bragðið en styrkleiki þess var um 50% sem hafði sitt að segja.

Viskíið er enn 50% að styrkleika og er framleitt af nokkrum litlum brugghúsum í takmörkuðu upplagi undir nöfnum eins og Whistlepig, Knob Creek Rye og Redemption.

Sem dæmi um vinsældir þess nefnir Bloomberg að á börum í Hong Kong er sjússinn af einni tegund af 10 ára og 25 ára gömlu rúgviskí seldur á yfir 18 þúsund kr.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×