Viðskipti erlent

Eigandi IKEA vinnur enn fullan vinnudag orðinn 87 ára gamall

Ingvar Kamprad stofnandi og eigandi IKEA vinnur enn fullan vinnudag þótt hann sé orðinn 87 ára gamall.

Kamprad segir í viðtali við Aftonbladet að hann muni vinna á meðan hann geti staðið uppréttur. Jafnframt að það sé nauðsynlegt að byrja daginn snemma, annars komi maður engu í verk.

Kamprad hefur forðast sviðsljósið á undanförnum árum eða eftir að hann flutti lögheimili sitt til Sviss. Hann reynir þó að eyða eins miklum tíma og hann getur í Svíþjóð, einkum yfir sumartímann. Í viðtalinu kemur fram að Kamprad ferðast mikið um heiminn í viðskiptaerindum. Viðtalið fór hinsvegar fram í þorpinu Agunnaryd í Smálöndunum þar sem Kamprad er fæddur.

Daginn sem viðtalið var tekið átti Kamprad að vera á fundi í Zurich en vildi heldur vera viðstaddur opnun nýrrar þjónustu- og verslunarmiðstöðvar í grennd við fæðingarþorp sitt. Hann taldi sig hugsanlega geta nýtt sér opnunartilboðin þar.

Sem kunnugt er af fréttum er Kamprad í hópi auðugustu manna heimsins. Hann var í fimmta sæti á milljarðamæringalista Bloomberg í fyrra. Auðæfi hans voru þá metin á yfir 46 milljarða dollara. Þessi upphæð samsvarar ríflega þrefaldri landsframleiðslu Íslands.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×