Viðskipti erlent

Viðskiptaþvinganir gagnvart Íslandi og Færeyjum ræddar á ESB fundi í dag

Viðskiptaþvinganir gagnvart Íslendingum og Færeyingum vegna makrílveiða þjóðanna verða ræddar á fundi í fiskveiðaráði Evrópusambandsins í dag.

Skoskir fulltrúar á fundinum eru undir miklum þrýstingi frá útgerðarmönnum heima fyrir um að ná þessum viðskiptaþvingunum í gegn á fundinum, það er fá framkvæmdastjórn sambandsins til að gera slíkt. Þetta kemur fram á vefsíðunni Thefishsite.

Viðskiptaþvinganir hafa þegar verið ákveðnar gangvart ákveðnum fiskafurðum frá Íslandi og Færeyjum en framkvæmdastjórnin hefur enn ekki komið þeim í verk.

Vefsíðan vitnar í formann útgerða sem stunda uppsjávarveiðar í Skotlandi. Hann segir að tíminn til að slugsa með að beita Íslendinga og Færeyinga viðskiptaþvingunum eða refsiaðgerðum sé liðinn. Tími raunverulegra aðgerða sé runninn upp nú þegar makrílveiðarnar eru að hefjast.

Formaðurinn Ian Gatt segir að búið sé að ræða þessar aðgerðir gegn Íslendingum og Færeyingum í ein fjögur ár innan Evrópusambandsins. Skoskir sjómenn séu vægt sagt orðnir langeygir eftir einhverjum raunverulegum aðgerðum. Það hafi valdið þeim verulegum vonbrigðum að málið hafi tekið allan þennan tíma án aðgerða.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×