Dust 514 kemur út í dag Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 14. maí 2013 15:50
Í dag sendir tölvuleikjaframleiðandinn CCP frá sér nýjan skotleik, Dust 514. Leikurinn er gerður fyrir PlayStation 3 leikjavélar og gerist í sama sýndarheimi og fjölspilunarleikurinn Eve Online, sem fagnar tíu ára afmæli sínu í ár. Eve Online hefur stækkað og eflst með hverju ári og eru áskrifendur hans í dag rúmlega 500.000. Ljóst er að með tilkomu Dust 514 stækkar Eve heimurinn umtalsvert. Með sama hætti og CCP hefur viðhaldið vexti Eve Online hyggst fyrirtækið gefa út sérstakar viðbætur við Dust 514 með reglulegu millibili. Tilgangur viðbótanna er að búa til ný og spennandi tækifæri fyrir spilara leiksins, auk þess sem ýmsar endurbætur eru gerðar í samræmi við óskir og væntingar spilara hans. Næsta viðbót við Eve Online, Odyssey, kemur út þann 4. júní, og síðar í ár er ráðgert að fyrsta stóra viðbótin við Dust 514 líti dagsins ljós. Dust 514 verður fáanlegur án endurgjalds í gegn um PSN-dreifikerfi Sony, og er þar með fyrsti leikur sinnar tegundar til að styðjast við nýtt viðskiptamódel, svokallaða „Free to play“ útgáfu. Leikurinn sjálfur er þá fáanlegur án greiðslu, en tekna aflað með sölu á vopnum, farartækjum og ýmsum öðrum varningi í leiknum sjálfum. Spilarar geta þannig aukið við upplifun sína við spilun leiksins með margvíslegum hætti. Framleiðendur PC leikja hafa sumir hverjir náð góðum árangri með „Free to play“ útgáfum og eru slíkir titlar meðal þeirra stærstu í tölvuleikjaiðnaðinum í dag. CCP fer nú inn á markað leikjatölva með þetta viðskiptamódel. Dust 514 er fjölspilunarskotleikur þar sem spilarar berjast um landsvæði, auðlindir og áhrif og nota til þess herkænsku, áræðni og samskipti við aðra spilara. Leikurinn gerist á plánetum í sama sýndarheimi og Eve Online, fjölspilunarleik CCP sem gefin var út árið 2003 og er leikinn gegnum PC-tölvur. Þar sem leikirnir gerast í sama heimi tengir Dust 514 saman leikjaheim PC og leikjatölva, fyrstur allra tölvuleikja. Á meðan spilarar EVE Online stjórna geimskipum EVE heimsins sjá spilarar Dust 514 um atburðarrásina á yfirborði pláneta. Spilarar leikjana geta þannig hvor sig haft áhrif á framvindu mála í báðum leikjunum.Mynd/CCPMynd/CCPMynd/CCPMynd/CCPMynd/CCPMynd/CCP
Leikjavísir Mest lesið „Þetta var algjört bíómyndamóment“ Lífið Samband Gallagher-bræðra sagt á hálum ís Lífið Öldrun í hársverði - Fríða Rut gefur ráð Lífið samstarf Katy Perry og Justin Trudeau á stefnumóti Lífið Úr kjallaranum hjá mömmu yfir á stóra sviðið Tónlist „Ekkert okkar grunaði að hann myndi fara þessa leið“ Lífið Hágæða merkjavara á geggjuðum afslætti út föstudaginn Lífið samstarf Stjörnulífið: „Who the fuck is Kaleo?“ Lífið Ræðir það ekki í fjölskylduboði ef þú hittir frænda þinn á swing-viðburði Lífið Flottasti garður landsins er á Selfossi Lífið samstarf Fleiri fréttir Frá Íslandi til stjarnanna Léttir að geta loks rætt íslenskan leik opinberlega Myrkur Games birta fyrstu stiklu Echoes of the End Hvað í ósköpunum gerði James Bond á Íslandi? Sjá meira