Fjarðará gaf á fjórða hundrað bleikjur í fyrra 21. apríl 2013 13:46 Bleikju landað í Fjarðará mynd/svak
Stangveiðifélag Akureyrar heldur annað kvöld klukkan 20:00 kynningu á Fjarðará í Hvalvatnsfirði fyrir stangveiðimönnum norðan heima. Ætla menn að koma saman í Amaróhúsinu í samstarfi við Veiðivörur.is. Það er Jóakim K. Júlíusson, lögreglumaður frá Húsavík, sem sér um kynninguna en hann er þaulkunnugur ánni. Samkvæmt veiðibók SVAK veiddust á fjórða hundrað bleikjur í ánni í fyrra sem er mikil aukning frá því árinu áður. Þeir sem ekki eiga heimangengt, eða treysta sér ekki til að verja mörgum klukkutímum í ferðalög, verða að láta myndband með leiðsögn um Fjarðará í Hvalvatnsfirði duga, en hana er að finna á vef Stangaveiðifélags Akureyrar þar sem veiðileyfi á þetta sjóbleikjusvæði eru seld. Að því er segir á svak.is heitir svæðið sem um ræðir Fjörður. Það er samheiti yfir dalina sem ganga upp af Þorgeirsfirði og Hvalvatnsfirði sem eru nyrstu firðirnir á skaganum á milli Eyjafjarðar og Skjálfandaflóa. Þar eru tvær bleikjuár, Gilsá sem heitir Fjarðará síðasta spölinn áður en hún fellur í Hvalvatnsfjörð og síðan Hólsá í Þorgeirsfirði.Í myndbandinu á svak.is er leiðinni að Fjarðará lýst og leiðbeint með veiðistaði þar. svavar@frettabladid.is
Stangveiði Mest lesið Gæti stefnt í mjög gott sumar í Eystri Rangá Veiði Kynning á veiðistöngum við Vífilsstaðavatn Veiði Lifnar aðeins yfir Blöndu Veiði Góðu tímibili lokið í Steinsmýrarvötnum Veiði Eins og í lygasögu Veiði Lax að ganga í Hvannadalsá Veiði Mótorhjólalögga vill verða formaður SVFR Veiði Stefnir í gott veður síðustu helgina í rjúpu Veiði Tveir risar úr Vatnsdalsá Veiði Öflug fluga í köld vötn að vori Veiði