Ný fatalína 66°norður og Munda frumsýnd á RFF Ellý Ármanns skrifar 12. mars 2013 10:45
66°norður og fatahönnuðurinn Mundi kynna „Snow Blind", nýja fatalínu sem frumsýnd verður á Reykjavík Fashion Festival eða RFF. Þessi nýja fatalína tvinnar saman hugarheim Munda og tækniþekkingu 66°norður. Afrakstur samstarfsins er útivistarfatnaður sem er engu öðru líkur en viðeigandi við öll tækifæri.Snow Blind - ný fatalína Munda verður frumsýnd á RFF.Snið, mynstur og litir eru afkvæmi undirvitundar Munda og unnin undir áhrifum frá hugmyndum hans um heiminn eftir heimsendi. Einnig er unnið með nokkra af vinsælustu stílgerðum 66°norður sem Mundi gefur nýtt útlit með framúrstefnulegum mynstrum. Útfærslan byggir á áratuga reynslu og þekkingu 66°norður við hönnun á fatnaði fyrir krefjandi aðstæður. Engu er til sparað hvað varðar efnisval og má nefna að einangrunin í jökkunum er úr Primaloft efninu sem gerir flíkurnar mjög hlýjar en um leið mjög léttar og efni í nokkrum flíkum hrinda frá sér vatni og vindum.Mundi fatahönnuður.Framúrstefnuleg fatalína Fatalínan er framúrstefnuleg og samanstendur af hlýjum einangrandi jökkum, peysum og buxum. Einnig fylgihlutum eins og vettlingum, húfum og töskum. „Það er skemmtilegur og öðruvísi framtíðar- og hátækniblær yfir línunni og gott dæmi um það eru sjálflýsandi rennilásar sem eru á nokkrum flíkum sem við höfum verið að leika okkur með", segir Mundi, sem hefur á skömmum tíma skipað sér á stall sem einn fremsti fatahönnuður landsins. Mundi er þekktur fyrir að fara sínar eigin leiðir í hverju því sem hann tekur sér fyrir hendur. 66°NORÐUR var stofnað árið 1926 og er elsti framleiðandi útivistarfatnaðar á Íslandi. Frá því félagið hóf framleiðslu á sjófatnaði fyrir 86 árum hefur það lagt mikla áherslu á gæði og bestu aðferðir sem völ er á hverju sinni. „Snow Blind" línan verður frumsýnd á RFF 16. mars og er væntanleg í verslanir næsta haust. Nánari upplýsingar um 66°norður og Munda má finna á www.66north.is og www.mundivondi.net.RFF.IS
RFF Mest lesið „Auðvitað væri ég til í að ná enn lengra“ Lífið Hvað er Labubu og hvers vegna eru allir að missa sig yfir því? Tíska og hönnun Fréttatía vikunnar: Kjarnorkukafbátur, málþóf og magapína Lífið Hneykslast á freðnum Bieber dansa við Sexyy Redd og kyssa hana á ennið Lífið Gamli er (ekki) alveg með'etta Gagnrýni Fellsmúlinn prýðir Instagramfærslu Justin Bieber Lífið Halla byrjaði á Keto, missti tuttugu kíló og hætti á gigtarlyfjunum Lífið Ætlar að ná styrk í fingurna til að geta greitt dótturinni Lífið Opnar sig um stormasamt hjónaband á nýju plötunni Tónlist Aðeins þrír dagar liðnir og Bergur biður um hjálp Lífið Fleiri fréttir Hvað er Labubu og hvers vegna eru allir að missa sig yfir því? Upprunalega Birkin taskan seld á rúman milljarð „Best að vera allsber úti í náttúrunni“ Drottningar landsins kjörnuðu sig með Ernu Bergmann Marteinn Högni nýr framkvæmdastjóri Húrra „Núna þori ég miklu meira“ „Þetta kom mér jafnmikið á óvart eins og öðrum“ Stálu senunni í París Byrjaði fjögurra ára í búningaleik og hætti aldrei Katrín og Inga Rut í stjórn Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs Það allra heitasta í sumarförðuninni Sjá meira