Fótbolti

Kristinn kosinn vallarstjóri ársins

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Kristinn V. Jóhannsson, vallarstjóri Laugardalsvallar, og Ágúst Jensson, formaður SÍGÍ.
Kristinn V. Jóhannsson, vallarstjóri Laugardalsvallar, og Ágúst Jensson, formaður SÍGÍ. Mynd/SÍGÍ
Kristinn V. Jóhannsson, vallarstjóri Laugardalsvallar, var kjörinn vallarstjóri ársins 2012 þegar Samtök íþrótta og golfvallastarfsmanna (SÍGÍ) héldu ráðstefnu um uppbyggingu og viðhald golf og knattspyrnuvalla á laugardaginn.

Samhliða ráðstefnunni voru samtökin með aðalfund sinn og þar var bryddað upp á þeirri nýjung að velja vallarstjóra ársins, bæði fyrir golfvelli sem og knattspyrnuvelli.

Þeir sem fengu boð um að velja vallarstjóra ársins voru, dómarar og þjálfarar í efstu deild karla. Það er síðan stefnan að þetta verði árlegur viðburður.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×