Viðskipti erlent

Tap Century Aluminium minnkar verulega milli ára

Tapið af rekstri Century Aluminium, móðurfélags Norðuráls, minnkaði verulega á fjórða ársfjórðungi síðasta árs miðað við sama tímabil árið áður.

Tapið nam tæpum 7 milljónum dollara á síðasta ársfjórðungi en var rúmlega 31 milljón dollara á sama tímabili árið á undan.

Í frétt um málið á Reuters er haft eftir Michael Bless að öll álverin sem félagið rekur í heiminum, þar á meðal á Íslandi, hafi dregið úr rekstrarkostnaði sínum í fyrra.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×