Tíska og hönnun

Best klæddu konur vikunnar

Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar
Tískuvikur, frumsýningar og verðlaunahátíðir hafa sett sinn svip á síðustu vikur. Alla daga er eitthvað spennandi um að vera og þekkt andlit sjást klædd í sitt fínasta púss á hverju horni. Það er því af nógu að taka við að velja þær best klæddu, en þessar þrjár þóttu bera af í klæðaburði við hin ýmsu tilefni þessa vikuna að mati Lífsins.

Alexa Chung stígur ekki feilspor. Hér sýnir hún okkur að hvítur er líka fallegur litur til að klæðast á veturna. Hnésítt leðurpils og ullarpeysa - fullkomið!
Anne Hathaway var stórglæsileg í þessum stutta pallíettukjól frá Gucci á frumsýningu á dögunum. Kjólinn fer einstaklega vel við stutta hárið og liturinn tónar fallega við húðina.
Taylor Swift mætti í þessum æðislega kjól frá Elie Saab á BRIT verðlaunin í vikunni. Hann fór henni einstaklega vel, elegant og kynþokkafullur á sama tíma.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×