Enn hægt að finna útsölur 28. febrúar 2013 21:09 Veiðimenn geta enn gert góð kaup á útsölum og bætt svolítið í veiðidótasafnið. Mynd / Trausti Hafliðason
Þó nú sé aðeins mánuður í að stangveiðitímabilið hefjist formlega eru enn víða útsölur. Veiðihornið, Krafla og Veiðivon eru með útsölur. Í tilefni 15 ára afmælis Veiðihornsins býður verslunin 15 prósenta afslátt af öllum vörum þar til á fimmtudaginn, 7. mars. „Verslunin opnaði í febrúar árið 1998. Fyrst um sinn var Veiðihornið starfrækt í Hafnarstræti 5 en frá 2001 hefur Veiðihornið verið í Síðumúla 8 í Reykjavík," segir í tilkynningu. Veiðiverslunin Krafla við Höfðabakka 3 er einnig með útsölu eða „Kröflugos" eins og það er kallað í tilkynningu. Útsölunni lýkur nú um helgina. Opið verður frá 11 til 16 á laugardaginn og 13 til 16 á sunnudaginn. Loks má geta þess að í tengslum við bókamarkaðinn í Veiðivon, Mörkinni 6, er verslunin með fjölda vara á útsölu sem stendur til 16. mars.
Stangveiði Mest lesið Fyrsti laxinn kominn úr Eystri Rangá Veiði Forúthlutun hafin hjá SVFR Veiði 99 sm urriði í vorveiðinni í Ytri Rangá Veiði Ágæt veiði við Hraun í Ölfusi Veiði Ný glær flotlína frá Airflo Veiði Laxveiðin góð í öllum landshlutum Veiði Ennþá ágæt veiði í Veiðivötnum Veiði Frábær veiði á stöng í Jöklu 2011 Veiði Góðar göngur í árnar á Vesturlandi Veiði Veiðitímabilið loksins farið í gang Veiði