Tíska og hönnun

Sótti innblástur í skemmtanalífið

Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar
Diane von Furstenberg er ekki bara tískudrottning heldur hefur hún líka verið virkilega áberandi í skemmtanalífinu síðustu 40 árin. Hún var meðal annars tíður gestur á skemmtistaðnum alræmda Studio 54, var ljósmynduð af Andy Warhol og djammaði með David Bowie og Mick Jagger á áttunda áratugnum. Útkoman gat því ekki orðið neitt nema skrautleg þegar Furstenberg ákvað að sækja innblásturinn fyrir haust - og vetrarlínu sína í líf sitt í gegnum tíðina. Leður, munstur á munstur ofan, bjartir litir, gull og glamúr.

,,Lífið snýst ekki um að fara í partý, lífið er eitt stórt partý", sagði Furstenberg baksviðs.

Diane von Furstenberg gekk fram að sýningu lokinni við tóna lagsins ,,Im Every Woman".





Fleiri fréttir

Sjá meira


×