Viðskipti erlent

Fundað um neyðarlán til Kýpur, Kýpurbúar með ás upp í erminni

Fjármálaráðherrar evrusvæðisins funda í dag um hvort veita eigi Kýpur meira af neyðarlánum en þegar hefur verið ákveðið. Kýpurbúar eru með öflugan ás upp í erminni.

Kýpur hefur beðið um 17 milljarða evra til viðbótar þeirri upphæð sem þegar hefur verið ákveðið að lána þeim. Ekki er búist við að fjármálaráðherrarnir muni taka endanlega ákvörðun í dag en í augnablikinu rambar Kýpur á barmi þjóðargjaldþrots.

Kýpurbúar eiga þó öflugan ás upp í erminni en ásinn er gífurlegar birgðir af náttúrugasi undir landgrunni þeirra. Í nýrri greiningu metur Royal Bank of Scotland að verðmæti þessara gasbirgða nemi um 600 milljörðum evra eða hinni stjarnfræðilegu upphæð 103 billjónum króna. Vinnsla á þessu gasi hefst hinsvegar ekki fyrr en árið 2019. Þetta er því sýnd veiði en ekki gefin.

Það sem stendur í mörgum af ráðherrunum er að í skýrslu þýsku leyniþjónustunnar í fyrra kom fram að rússneskir auðmenn og rússneska mafían eiga 20 milljarða evra inni á reikningum í bönkum Kýpur eða nokkru hærri upphæð en nemur landsframleiðslu eyjunnar. Með meiri neyðarlánum væri m.a. verið að koma þessum innistæðum í skjól.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×