Viðskipti erlent

Spá hnignun hjá Apple

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Nordicphotos/AFP
Tæknirisinn Apple mun á miðvikudag opinbera uppgjör sitt fyrir síðasta ársfjórðung 2012. Margir reikna með því að í fyrsta skipti í níu ár hafi Apple ekki aukið hagnað sinn á milli fjórðunga.

Hlutabréf í Apple, verðmætasta fyrirtæki heims, hafa fallið um 20 prósent undanfarna þrjá mánuði eða frá síðasta uppgjöri. Stakur hlutur í fyrirtækinu var í september metinn á 705 dollara, þegar fyrirtækið kynnti iPhone 5 til sögunnar, en stóð á föstudag í 500 dollurum. Hluturinn hefur því lækkað um 29 prósent síðan í september.

Ein ástæða þess að verðmæti hlutabréfa í Apple hafa lækkað er talin vera ákvörðun Apple að veita í fyrstu ekki aðgang að Google Maps leitarvélinni í símum sínum. Apple kynnti sína eigin útgáfu leitarvélar til sögunnar sem naut ekki jafnmikilla vinsælda. Ein könnun leiddi í ljós að notendur voru þrisvar sinnum líklegri til þess að villast en með notkun Google Maps að því er greint er frá á vef Guardian.

Fólk bíður í röð eftir að geta fest kaup á Iphone 5.Nordicphotos/Getty
Þrátt fyrir allt er talið að Apple hafi selt nálægt 50 milljón iPhone-síma á síðasta ársfjórðungi auk þess sem mikil sala hefur verið á á iPad og iPad Mini tölvunum.

Töluverðrar spennu gætir fyrir uppgjörið á miðvikudag. Telja sumir að Apple muni halda uppteknum hætti á svipaðan hátt og General Motors og IBM gerðu á blómaskeiði sínu. Þá telja gagnrýnendur fyrirtækisins að Apple sé ofmetinn símaframleiðandi sem komist fljótlega í tengsl við raunveruleikann á nýjan leik.

Umfjöllun Guardian um Apple má lesa hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×